Starhagi 6, 107 Reykjavík (Vesturbær)
349.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á þremur hæðum
7 herb.
345 m2
349.000.000
Stofur
3
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1958
Brunabótamat
146.650.000
Fasteignamat
312.750.000

Eignastofan fasteignamiðlun kynnir:
Starhagi 6, Reykjavík. Glæsilegt einbýlishús ásamt bílskúr við Starhaga í Vesturbænum.  Sér íbúð í kjallara.  Húseignin er til afhendingar við kaupsamning.
Eignin verður aðeins sýnd í einkasýningu, bókið skoðun hjá:
Kristinn B. Ragnarsson viðskiptafræðingur / löggiltur fasteignasali í síma 8984125 eða á netfanginu [email protected]
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 345,9 fm, flatarmál íbúðarrýmis er 313,9 fm og flatarmál bílskúrs er 32,0 fm.
Húsið sem er hæð, ris og kjallara skiptist í 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, 1 snyrting, 2 stofur, borðstofu, 2 eldhús. Hiti í tröppum aðalinngangs.

Nánari lýsing:
Aðalhæð 106,5 fm. 
Anddyri með fatahengi, flísar á gólfi, gestasnyrting innaf anddyri.
Úr anddyrinu er gengið inn í rúmgott hol sem tengir saman aðrar vistarverur, parket á gólfi.
Eldhús er með sérhannaðri eik innréttingu, stórt helluborð, parket á gólfi. 
Borðstofan er björt og rúmgóð. einnig með parketi á gólfi 
Stofan er í björtu rými andspænis borðstofu, gengið út á rúmgóðar suðursvalir frá stofu. 
Gólfhiti.
Efri hæð (ris) 101,9 fm.
Glæsilegur viðarstigi parketlagður upp á efri hæð. Tvö svefnherbergi eru á hæðinni, öll parketlögð. Hjónaherbergið er með fataherbergi og sér baðherbergi með sturtu og baðkari, vegghengt salerni, hiti í gólfi, flísar á gólfi. Sér þvottaaðstaða á efri hæð. Gólfhiti.
Kjallarinn 105,5 fm. 
Í kjallara eru tvö rúmgóð svefnherbergi, eldhús með hvítri fallegri innréttingu, rúmgóð stofa, baðherbergið, flísalagt með sturtu og þvottaaðstöðu.
Gólfefni parket og flísar. Gólfhiti.
Bílskúrinn 32 fm.
Hiti í innkeyrslu og bílastæði fyrir framan bílskúr. Bílskúr er með vatni og rafmagni. 16 fm. garðhús er á baklóð.
Eignin hefur verið vel viðhaldið. Þakefni kopar.  Rennur, dren, rafmagn, allir gluggar, gólfefni, innréttingar og lagnir endurnýjaðar 2008.
Fallegur garður, hleðslustöðvar.
Nánari upplýsingar veitir Kristinn B. Ragnarsson viðskiptafræðingur / löggiltur fasteignasali í síma 8984125 eða á netfanginu [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.